Wednesday, July 25, 2007

3 dagar í þetta

Vá við erum ekkert að skilja að við erum að fara út.... eða allavega ekki ég.. Ingvi er nú eiginlega búinn að pakka öllu niður.. ég er enn bara að fara á kaffihús og kveðja alla.. varla byrjuð að pæla í því sem ég ætla að taka með út.... finnst þetta eitthvað mjög óraunverulegt.
En gaman gaman Helga, Kata og Gummi eru búin að ákveða að koma til mín í byrjun desember.. eins gott að þið komið með afmælisgjöf ;). Ég skal þá baka köku ;)
Held einmitt að það sé lítið að gera í skólanum á þessum tíma svo ætti að geta eytt einhverjum tíma með þeim :)
En hvernig velur maður hvaða föt maður á að taka með.. langar að taka þau öll...og 20 kg.. þetta er ekki neitt.... ein pínuínumíni taska...
Samt gaman að kveðja fólk, maður er alltaf í góðum hádegismat eða kvöldmat og hitta alla... sé það að maður ætti að fara mikið oftar út að borða með vinunum.. geðveikt gaman :)
Er einmitt að fara með Helgu og Önnu á indverskan stað núna... búin að fara síðustu tvö kvöld með vinkonunum og frænkunum og svo á morgun í hádeginu ætlar vinnan að kveðja mig... Maður fitnar bara við þetta ;)

2 comments:

Unknown said...

þú ert bara faaaaaaaaaaaarin :(

Þú verður að farað blogga hérna inná kona svo maður viti að þið eruð á lífi!! Hef geggjaðar áhyggjur af ykkur í þessari klikk borg :S samt fín borg :)

Anonymous said...

Jæja skvís, á ekkert að koma með news from london???
Hvað er búið að gerast?
R U Alive???
Miss u babe!