Tuesday, July 8, 2008

I´m FREEEE :)

Fyrir þá sem hafa ekki fengið öskrandi símhringinu um að ég náði LSE og það með bara mjög góðum einkunum... en já þá náði ég LSE... ÓGEÐSLEGA ÁNÆGÐ :)
Ég er sem sagt frjáls frá LSE :)

En ég og Ingvi fórum í road trip um helgina...og þar sem það er mánuður í að sumir verði 25 ára var ákveðið að láta fröken Karen keyra hérna í vinstri umferðinni á Bretlandi. Þetta gekk svo sem ágætlega og ég var orðin mjög góð á þriðja degi... en fyrst þurfti ég auðvitað að gera öll mistök sem hægt er að gera... keyra inn einu sinni vitlausu megin á götuna (sem betur fer var enginn bíll.. bara öskrandi Ingvi sem lét mig vita af því), vinstra framhornið á bílnum var í mikilli hættu allan tímann og svo var ég næstum búin að keyra niður einn hest úti á landi ;)
Plús við fengum ekki GPS tæki svo það var brunað og keypt stór A5 blaða vegabók og hún notuð um allt mitt Bretland. En þetta var mjög gaman, keyptum okkur tjald og tjölduðum rétt hjá Warwick og Stratford upon Avon og skoðuðum Warwick kastala og sáum arnarsýningu sem var frábær, skoðum svo allt í kringum Shakespear í Startford en þar fæddist hann og fórum á þennan geðveika fiðrildabúgarð með þessum Huge fiðrildum sem settust á mann.
En þvílíkt frelsi að hafa bíl.. búin að sakna þess mikið og held að allar næstu helgar verði leigður bíll og farið eitthvað út fyrir London. Maður er komin með smá ógeð á að vera hérna.. og mjög æðislegt að fara út á land í sveitalífið ;)
Set inn hérna nokkrar myndir af ferðinni okkar




En sé ykkur öll í ágúst
bæjó
Karen

6 comments:

Unknown said...

"ég mun fallA...uhuhuh!" MY ASS!

TIL HAMINGJU, LITLI KJÁNINN ÞINN!!! :D

HLAKKA TIL AÐ SJÁ ÞIG EFTIR 2 VIKUR! :)

-steina kleina

Jóhanna said...

Til haminju aftur :) Ég vissi að þú gætir þetta :) Íslendingar rúlla þessum kínverjum upp ;)

Ég er alltaf á leiðinni að fara að leigja bíl og keyra út fyrir London - en búin að vera í London í tvö ár og ekki gert það ennþá :S verð að fara að láta verða að því!!!

kv.

Jóhanna

Anonymous said...

Til hamingju SNILLINGURINN MINN!! Hlakka ótrúlega mikið að fá þig heim, ætla að gera hreint og fínt í snælduhorninu þínu =)
Knúz,
Helga

ASH said...

Til hamingju með þennan frábæra áfanga. Hlakka til að sjá þig í ágúst (",)

Anonymous said...

ellefu dagar í mig ELSKAN!

-leynilegur aðdáandi



(aka steinunn)

Anonymous said...

hæ sæta;) ÉG ER BÚNAÐ VERA AÐ REYNA NÁ Í ÞIG Í ÞENNAN BLESSAÐA SÍMA ÞINN EN ÞÚ SVARA ALDREI! manni getur nú sárnað;)
anyway, ÞÚ ERT SNILLI:) til hamingju með þetta, geðveikt stolt af þér:) hvenær komiði svo heim??? manni er farið að hlakka til að sja ykkur! njótið þess svo seinustu vikurnar að vera í FRÍI, og gerðu það fyrir mig, ekki lesa neitt á meðan, ekki einu sinni þetta comment, þú verður að afvatna heilann af lestri og álagi;)
kissss kissss
stína frænka + kiddi + ísak þór + skonsa;)